mánudagur 15.mars 2010
Næstkomandi miðvikudagskvöld verður keppt í fimmgangi í KS-deildinni. Það verður örugglega mikil spenna í Svaðastaðahöllinni og
hefst keppni kl: 20:00. Stigakeppnin er mjög jöfn og ljóst er að knapar meiga ekki við miklum mistökum ætli þeir sér að vera áfram í
baráttunni um efstu sæti. Mjög gott áhorf hefur verið á þau mót sem búin eru í deildinni og mikil stemming. Spennan er mikil og
verður spennandi að fylgjast hverjir raða sér í efstu sæti. Ráslista má sjá inná linknum fimmgangur .







