þriðjudagur 05.apríl 2011
Kvennatölt Norðurlands í boði útflutningsþjónustu Eysteins Leifssonar ehf fer fram laugardaginn 9. apríl kl 20:00 í reiðhöllinni
Svaðastaðir á Sauðárkróki. Keppt verður í tveimum flokkum; keppnisvanar og minna keppnisvanar. Skráning fer fram á svadastadir@simnet.is og í síma 8425240 fyrir kl. 17:00 fimmtudaginn 7. apríl. Skráningargjald er
kr. 1500.- og greiðist á mótsstað fyrir keppni. Aðgangseyrir er kr. 1000.- og er frítt fyrir 12 ára og yngri. Er þetta annað árið sem
þetta mót er haldið og var mótið í fyrra hreint frábært. Hvetjum allar konur til að söðla gæðinga sína og mæta til
keppni.







