headerheaderheaderheaderheaderheader
Bookmark and Share

Reiðhöllin Svaðastaðir

Laufskálaréttarhelgi framundan. Mikið verður um að vera í og við reiðhöllina Svaðastaðir á Sauðárkróki um laufskálaréttarhelgina næstu helgi.Dagskráin

Laufskálaréttarhelgi framundan.

Mikið verður um að vera í og við reiðhöllina Svaðastaðir á Sauðárkróki um laufskálaréttarhelgina næstu helgi.Dagskráin hefst á föstudaginn á félagssvæði hestamannafélagsins Léttfeta sem er við reiðhöllinna kl: 16 á skeiðkappreiðum sem skeiðfélagið Kjarval sér um.Keppt verður í 150m og 250m skeiði úr startbásum með rafrænin tímatöku. Strax á eftir kappreiðunum verður sölusýning á vegum Hrossaræktarsambands Skagfirðinga á sama velli, skráning er mjög góð á sölusýningunna og hrossakostur góður. Á föstudagskvöldið er sýning í reiðhöllinni sem hefst kl:20:30. Þar verða til sýnis glæsihross og gleði verður mikill, meðal atriða á sýningunni verður töltkeppni, stóðhestakeppni, skagfirskir gæðingar, æsispennandi skeiðkeppni,ræktunarbú skagafjarðar 2010, systkinin frá Sunnuhvoli og margt fleira. Eftir sýninguna verður boðið uppá skagfirska eðaltóna í andyri reiðhallarinnar. Á laugardagskvöldið verður síðan Laufskálaréttardansleikur í reiðhöllinni sem hefst kl:23. Óhætt er að segja að mjög mikið verður lagt í ballið sem verður það allra flottasta sem haldið hefur verið. Hin magnaða skagfirska hljómsveit Von mun sjá um stuðið ásamt landsliði söngvara sem eru Matti Papi, Sigga Beinteins, Magni Ásgeirs, Jogvan og Vignir Snær.Forsala fyrir ballið á laugardagskvöldið og reiðhallarsýningunna á föstudagskvöldið er í N1 á Sauðárkróki.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf