Keppt verður í gæðingafimi, slaktaumatölti og
skeiði miðvikudaginn 20. apríl kl.20:00. Skráning er á svadastadir@simnet.is og í síma 8425240 fyrir kl.22:00 mánudaginn 18. apríl.
Skráningargjald er 1500.- og greiðist á keppnisstað fyrir keppni. Keppt verður í einum flokki í öllum greinum.
Gæðingafimi
Gæðingafimin er krefjandi keppnisgrein þar sem reynir á ganghæfileika, þjálfunarstig hests og knapa, fegurð, kraft og glæsileik. Sýningin er
spuni og ræðst árangur m.a. af útfærslu og frumkvæði knapa. Sýnandi fær fjórar mínútur til þess að sýna
það besta sem knapi og hestur hefur uppá að bjóða og er dæmdur af tveimur dómurum. Dómarar gefa einkunnir fyrir gangtegundir, flæði,
æfingar og fjölhæfni.
Lengd sýningar má vera að hámarki þrjár og hálf mínúta, haldi keppandi áfram að þeim tíma liðnum
kemur það niður á einkunn fyrir flæði. Riðið skal stystu leið að upphafspunkti æfingar sem getur verið hvar sem er á vellinum, hneigja
sig og hefja keppni. Keppandi hefur fjórar mínútur frá því að keppni hefst til að klára sína sýningu og yfirgefa
völlinn.
Sýna skal a.m.k. þrjár gangtegundir og fimm fimiæfingar. Keppandi velur og skaffar tónlist
sjálfur.Þulur lætur keppanda vita þegar 30 sek. eru eftir af leifilegum tíma prógrams.
Dæmi um æfingar sem knapar geta notað í sýningu:
Riðið á hringnum
Krossgangur
Sniðgangur opinn / lokaður
Hraðabreytingar á gangtegundum; tölti brokki stökki
Framfótarsnúningur
Afturfótarsnúningur
Riðin átta
Skipt yfir allan völlinn
Bakka
Fet við langan taum
Ekki er þetta tæmandi upptalning heldur aðeins ábending um hvað hægt er að notast við. Þeir keppendur sem kjósa að velja sér
æfingar utan þessa lista hafa að sjálfsögðu heimild til þess. Dómarar dæma æfingar hverja fyrir sig frá eink. 0 – 10. Deilitala
ræðst síðan af fjölda æfinga en er þó aldrei lægri en fimm sem er lágmarksfjöldi æfinga. Allar æfingar hafa sama
vægi.
Dómarar dæma á sama hátt gangtegundir og ræðst deilitala af fjölda sýndra gangtegunda. Deilitala verður þó aldrei lægri en
þrír sem er lágmarksfjöldi sýndra gangtegunda.
Einkunnir fyrir flæði og fjölhæfni eru gefnar samkvæmt leiðurum.
Lokaeinkunn er vegið meðaltal þessara fjögurra einkunna þar sem einkunn fyrir flæði hefur tvöfalt vægi.
Dómarar eru staðsettir á miðri langhlið nær áhorfendum.
Dómarar rétta upp eina aðaleinkun fyrir hvern knapa.







