þriðjudagur 06.apríl 2010
Miðvikudagskvöldið 7.apríl fer fram lokakeppnin í KS - Deildinni.
Keppt verður í Svaðastaðahöllinni og hefst keppnin kl.20.00.
Keppt verður í smala og skeiði.Mikil spenna er fyrir þetta síðasta kvöld en nokkrir knapar eiga enn raunhæfa
möguleika á að vinna deildina. Þar stendur Bjarni Jónasson best að vígi.
Allt getur gerst þetta lokakvöld, því keppnisgreinarnar bjóða báðar upp á
hraða og spennu. Búist er við fjölda áhorfenda en aðsókn að deildinni
í vetur hefur verið mjög góð. Ráslisti er á flipanum ýmis mót - ks deild - ráslistar - smali/skeið.
Björn Jónsson frá Vatnsleysu hefur hætt keppni.







