mánudagur 04.apríl 2011
Miðvikudaginn 6. apríl kl 20:00 verður keppt í smala og skeiði í lokamóti skagfirsku mótaraðarinnar. Í smala er keppt í unglingaflokki
( 16 ára og yngri ) og fullorðinsflokki. Í skeiði er keppt í einum flokki. Skráning er á svadastadir@simnet.is og í síma 8425240 fyrir kl
20:00 mánudaginn 4. apríl. Skráningargjald er 1500.- og greiðist á mótstað fyrir keppni. Aðgangseyrir er 1000.- og frítt fyrir 12
ára og yngri. Húsið opnar kl 19:30.
Hægt verður að æfa sig í smalabrautinni eftir kl 15:00 á mótsdag ( einungis keppendur sem eru skráðir í mótið )
Hægt verður að æfa sig í smalabrautinni eftir kl 15:00 á mótsdag ( einungis keppendur sem eru skráðir í mótið )







