mánudagur 29.mars 2010
Nú er afstaðin ljómandi góð sýning og vel sótt, það voru um 400 gestir sem komu á sýningunna. Gaman var að sjá hversu
norðlendingar virðast vera vel hestaðir fyrir komandi landsmót. Margt gladdi augað, það var virkilega gaman að sjá hversu mörg ung og verulega
spennandi hross komu fram og verður gaman að fylgjast með þessum upprennandi gæðingum í sumar. Kunnum við öllum sýnendum og
aðstoðarfólki kærar þakkir fyrir að gera þessa sýningu eins góða og hún varð.







