headerheaderheaderheaderheaderheader
Bookmark and Share

Reiðhöllin Svaðastaðir

Sveitasæla 2011 verður haldin 20. ágúst Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla er nú haldin hvert ár í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki.

Sveitasæla 2011 verður haldin 20. ágúst

Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla er nú haldin hvert ár í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki. Sýningin var fyrst haldin árið 2005, en síðast þegar hún var haldin árið 2010 sóttu um eitt þúsund og fimmhundruð gestir sýninguna heim. Sveitasæla 2011 verður haldin laugardaginn 20. ágúst. Dagskráin er hlaðin fjölbreyttum atriðum fyrir bæði börn og fullorðna; búvéla- og búvörusýningar, kálfa- og hrútasýningar, húsdýragarður, fornar vinnsluaðferðir til sveita og margt fleira. Ekki verða svokölluð sýningarkerfi eins og áður hefur verið inn í höllinni, heldur verður hver fermeter leigður á gólfi með aðgangi að rafmagni og netsambandi. Einnig er hægt að fá stóla og borð leigð gegn mjög vægu gjaldi. Ef sýningaraðilar ætla að stilla vöru upp eða hengja upp, verða þeir að koma með eitthvað til þess sjálfir. Verð fyrir pr. fermetra á gólfi er kr. 6.000.- . Einnig verður boðið upp á svokallaðan sveitamarkað á borðum sem eru 70 x 280 cm, ætlað fyrir minni söluaðilla. Verð á slíku borði er 5.000.- (án vsk). Útisvæði er einnig í boði sem sýningarsvæði eins og hefur verið áður, verð á fermetra þar er kr 300.-. Öll verð eru án virðisaukaskatts. Áhugasamir sýnendur eru hvattir til að hafa samband við Eyþór sýningarstjóra á svadastadir@simnet.is eða í síma 8425240.
Dagskrá sýningarinnar má sjá inná www.visitskagafjordur.is, á flipanum SveitaSæla. Erum einnig á Facebook.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf