miðvikudagur 27.apríl 2011
Forsala á stórsýningunna Tekið til kostanna í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki er hafin hjá N1 á
Sauðárkróki. Miðaverð er 2500.- krónur. Dagskráin hefst á kynbótasýningu á föstudaginn kl. 10:00 á
félagssvæði hestamannafélagsins Léttfeta sem er við reiðhöllinna. Dagskráin á laugardaginn hefst á yfirlitssýning
kynbótahrossa kl. 10:00 að henni lokinni heldur dagskráin áfram inní reiðhöllinni, kl. 13:00 er kennslusýning reiðkennarabrautar
Háskólans á Hólum þar sem margt mjög athyglisvert verður sýnt og kennt. Stórsýningin Tekið til Kostanna hefst svo kl.20:00 (
húsið opnar kl. 19:00 ). Sýningin verður mjög fjölbreitt og skemmtileg þar sem ungir sem aldnir munu sýna gæðinga sína. Meðal annars
koma fram á sýningunni stórgæðingurinn Kilja frá Steinnesi, hinar stórgóðu húnvetnsku Dívur, Grettir frá Grafarkoti
ásamt dóttur sinni, Fróði frá Staðartungu, kynbótahross, Eyfirsku Gæsirnar, Hrannar frá Flugumýri, Vafi frá Ysta-Mó,
afkvæmahópar, ræktunarbúshópar og margt fleira sem auglýst verður síðar. Eftir sýningu munu stórgóðir skagfirskir
skemmtikraftar halda uppi gríðar stemmingu.







