Vetrarstarf (frá janúar og fram í maí) í Reiðhöllinni Svaðastaðir.
Ekki er hægt annað en að segja að vetrarstarf Reiðhallarinar hafi verið með miklum blóma í vetur. Mörg og góð mót, kröftugt barna og unglinga starf og glæsilegar sýningar.
Veturinn byrjaði með úrtöku fyrir Meistaradeild Norðurlands (KS-deildin) þar sem 14 voru skráðir, að berjast um sjö laus sæti í deildinni. Upp úr febrúar fór sameigiðlegt barna og unglinga starf hestamannafélaga í Skagafirði af stað, þar sem um 90 börn og unglingar komu saman hálfs mánaðarlega. Að auki var hestammanna félagið Léttfeti með æfingar tvö kvöld í hverri viku, þar sem 50 börn og unglingar mættu.
Þá fóru mótin á stað, fyrst KS-deildin (fjögur mót) með sýna 18 keppendur, þá Skagfirska mótaröðin (fjögur mót), sem að jafnaði var með um 50 til 60 skráningar á hverju mót. Síðan kom að hinu margrómaða Áskorendamóti Riddarana þar sem fimm lið öttu kappi við hvort annað. Þá var komið að konunum, en haldið var Kvennatölt Norðurlands í byrjun apríl þar sem keppt var í tveimur flokkum minna (26 skráningar) og meira vanar (20 skráningar). Tókst það með ágætum og er komið til að vera. Að lokum var haldið eitt af þremur grunnskólamótum í hestaíþróttum, sem er samstarf hestamannafélaga á Norðurlandi Vestra.
Ræktun Norðurlands var haldin í annað sinn með miklum glæsibrag og síðan var Tekið til kostanna á sínum stað. Troð full Höll og sýningin með þeim allra bestu. Ungdómurinn átti svo að setja punktinn yfir ið, með stór sýningu Æskan og hesturinn. En vegna hósta og eða kvefpestar í hrossum varð að aflýsa þeirri sýningu þetta árið og er það miður, því búið var að æfa mikið og stefndi í flotta sýningu.
Fyrir utan allt þetta hefur hestabraut Fjölbrautarskólans verið starfandi í allan vetur með yfir 30 nemendur. Þá hefur fótbolti fengið inni yfir vetrar mánuðina og Iðja (hreifi hamlaðir einstaklingar) . Auk þess hafa reiðkennarar komið og verið með einkakennslu og fyrir hópa. Þá hafa tamningamenn og annað hestaáhugafólk verið duglegt að æfa í höllinni á þeim tímum sem laust er.
Eins og sést á þessari upptalningu er mikil starfsemi í reiðhöllinni Svaðastaðir og er sennilega ekki eins mikið um að vera í öðrum reiðhöllum landsins. Þakka ber öllum þeim gestum sem hafa verið mjög duglegir við að sækja viðburði í reiðhöllinni í vetur, eins öllum knöpum sem hafa lagt mikið á sig við að gera sýningarnar í vetur sem glæsilegastar. Ekki má gleyma öllu því góða fólki sem starfað hefur við allar uppákomur í vetur. Kærar þakkir fyrir góðan og skemmtilegan vetur í reiðhöllinni Svaðastaðir.
Eyþór Jónasson framkvæmdastjóri reiðhallarinnar.
Stefán Öxndal Reynisson hugmyndasmiður og viðburðastjórnandi reiðhallarinnar.







