headerheaderheaderheaderheaderheader
Bookmark and Share

Reiðhöllin Svaðastaðir

Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla er nú haldin hvert ár í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki. Sýningin var fyrst haldin árið 2005, en

Landbúnaðarsýningin Sveitasæla

Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin SveitaSæla er nú haldin hvert ár í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki. Sýningin var fyrst haldin árið 2005, en síðast þegar hún var haldin árið 2010 sóttu um eitt þúsund og fimmhundruð gestir sýninguna heim.Sveitasæla verður haldin laugardaginn 20 ágúst 2011. Dagskráin er hlaðin fjölbreyttum atriðum fyrir bæði börn og fullorðna; búvéla- og búvörusýningar, kálfa- og hrútasýningar, húsdýragarður, fornar vinnsluaðferðir til sveita  og margt fleira. Ekki verða svo kölluð sýningarkerfi eins og áður hefur verið inn í höllinni. Nú verður hver fermeter leygður á gólfi með aðgangi að rafmagni og netsambandi, einnig er hægt að fá stóla og borð leygð gegn mjög vægu gjaldi. Ef aðilar ætla að stilla vöru upp svo sem henja upp verða þeir að koma með eitthvað til þess sjálfir. Verð fyrir pr/fermetra á gólfi er 6000.- . Einnig verður boðið upp á svokallaðan sveitamarkað það eru borð sem eru 70 x 280 cm, ætlað fyrir minni söluaðilla. Verð á slíku borði er 5000.- ( án VSK ). Útisvæði er einnig boðið uppá sem sýningarsvæði eins og hefur verið áður, verð á pr/fermetra þar er 300.-. Öll verð eru án VSK.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf