
Útivistar- og sportsýningin Kraftur var í fyrsta sinn haldin í nóvember
árið 2009. Og mættu á hana um 1.200 gestir. Þar voru til sýnis jeppar, mótorhjól, snjósleðar, kajakar, byssur og bogar, ásamt
tækjum og tólum björgunarsveitanna. Ýmislegt var í boði; ökumenn véltækja reyndu með sér í kraftstælum, gestir skutu af
boga o.fl. Kraftur verður næst haldin í nóvember 2011.