Gæðingaleikar GDLH og hestamannfélagsins Skagfirðings

Gæðingaleikar GDLH og hestamannfélagsins Skagfirðings verða haldnir laugardaginn 23. mars í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki.

Keppt verður í öllum flokkum gæðinga:

                         

Barnaflokki

Unglingaflokki

B-flokk opinn flokkur

B-flokk áhugamenn

B-flokk ungmenna

A-flokk opnum flokki

A-flokk áhugamenn

A-flokk ungmenna

 

Riðin verður sérstök forkeppni þar sem 2-3 hestar verða í braut hverju sinni. Í B-flokk verður riðið hægt tölt, brokk og yfirferð. Í A-flokk verður riðið tölt, brokk og skeið í gegnum höllina. Í Barnaflokki verður riðið tölt eða brokk og stökk. Í Unglingaflokki verður riðið hægt tölt, brokk og yfirferðargangur. Athugið að taka fram við skráningu upp á hvora höndina er riðið.

 

Skráning er opin á Sportfengur.com og lýkur á miðnætti þann 21.mars. Þáttökugjaldið er 2000 kr. En allar nánari upplýsingar veitir Jón Þorberg í s: 8977076 eða Guðmundur Þór í s: 8966887.

Með kveðju,

GDLH og hestamannafélagið Skagfirðingur.