Norðlenska mótaröðin 2019

Fyrsta mót Norðlensku mótaraðarinnar verður laugardaginn 16. Febrúar í Þytsheimum á Hvammstanga, og verður að vera búið að skrá á miðnætti miðvikudaginn 13. febrúar.  

Skráning verður í gegnum skráningakerfi Sportfengs. 

Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki, ungmennaflokk, unglingaflokki og barnaflokki. Pollar skrá sig einnig til leiks.

 

Í 1., 2., ungmenna., og unglingaflokki verður keppt í V3, forkeppnin riðin skv. stjórn þular: Hægt tölt -Hægt- til milliferðar brokk - Meðalfet - Hægt til milliferðarstökk - Milliferðar til yfirferðartölt 

Í 3.flokk og barnaflokk verður keppt í V5, forkeppnin er riðin skv. stjórn þular: Frjáls ferð á tölti - Hægt til milliferðar brokk - Meðalfet - Hægt til milliferðar stökk

 

 

Hér fyrir neðan má sjá leiðbeiningar fyrir skráninguna, annars er slóðin þessi: http://skraning.sportfengur.com/ og farið undir mót.

Skráningargjaldið er 2.500 fyrir fullorðna og 1.500 fyrir ungmenni og unglinga. Skráningargjöld verður að millifæra svo skráning sé tekin gild. Skráning í Pollaflokk fer einnig fram í gegnum Sportfeng.

Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið er skráningargjaldið 4.000 kr.

Skráningargjald skal greiða um leið og skráð er. 

kt: 550180-0499 

Rnr: 0159-15-200343

Senda skal kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com

 

Knapar eru beðnir að yfirfara skráningar vel og skila breytingum inn fyrir klukkan 18:00 á fimmtudag á netfangið thytur1@gmail.com.

 

 

Aðgangseyrir er 500 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

Aðalstyrktaraðili fjórgangsins í Norlensku mótaröðinni  er Kaupfélag Vestur Húnvetninga