Norðlenska mótaröðin þriðja mót

Ákveðið hefur verið að keppt verði í T7 og slaktaumatölti á Hvammstanga 16.mars.

T3 og skeið í gegnum höllina á Sauðárkróki 30.mars.

 

Þriðja mót Norðlensku mótaraðarinnar verður laugardaginn 16. Mars  í Þytsheimum á Hvammstanga, og
verður að vera búið að skrá á miðnætti miðvikudaginn 13. Mars.   
Skráning verður í gegnum skráningakerfi Sportfengs. 
Keppt verður í T7 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki, ungmennaflokk, unglingaflokki og barnaflokki, Slaktaumatölt  meira vanir (skráist undir 1.fokkur í sportfeng) og minna vanir (skráist sem 2.flokkur í sportfeng). Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina eða fella niður flokka ef ekki er næg þáttaka. Pollar skrá sig einnig til leiks.
 
Keppt verður í T7 í öllum flokkum, forkeppnin riðin skv. stjórn þular: Hægt tölt – snúið við – Frjáls ferð á tölti.
Slaktaumatölt T4 í meira vönum (1 flokk) og minna vönum (2 flokk), forkeppni riðin skv. stjórn þular:  Frjáls hraði á tölti – Hægt tölt – snúið við – Tölt við slakan taum.
 
Hér fyrir neðan má sjá leiðbeiningar fyrir skráninguna, annars er slóðin þessi: http://skraning.sportfengur.com/ og
farið undir mót.
Skráningargjaldið er 2.500 fyrir fullorðna og 1.500 fyrir ungmenni og unglinga. Skráningargjöld verður að millifæra
svo skráning sé tekin gild. Skráning í Pollaflokk fer einnig fram í gegnum Sportfeng.
Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið er skráningargjaldið 4.000 kr.
Skráningargjald skal greiða um leið og skráð er. 
kt: 550180-0499 
Rnr: 0159-15-200343
Senda skal kvittun fyrir greiðslu skráningargjalds á netfangið thytur1@gmail.com
 
Knapar eru beðnir að yfirfara skráningar vel og skila breytingum inn fyrir klukkan 18:00 á fimmtudag á
netfangið thytur1@gmail.com.
 
 
Aðgangseyrir er 500 en frítt fyrir 12 ára og yngri.
Aðalstyrktaraðili fjórgangsins í Norlensku mótaröðinni  er Steypustöð Skagafjarðar