Sölusýning Félags hrossabænda á Norðurlandi

Þann 2. nóvember kl 17:00 efnir Félag Hrossabænda til sölusýningar í Svaðastaðahöllinni. Á síðustu sölusýningu, sem haldin var í Spretti mættu u.þ.b.100 hross, 500 manns sátu í stúkunni og mörg þúsund fylgdust með í beinni útsendingu. Markmiðið er að búa til markaðsglugga og auðvelda fólki að koma hestum sínum á framfæri.

Bein útsending verður frá viðburðinum sem verður dreift víða; á facebook og öðrum félagsmiðlum og mun efnið lifa þar inni þannig fólk getur nálgast upptökuna af sínum hesti að lokinni sýningu.

Verðflokkarnir verða

A - 0 - 750.000 kr
B - 750.001 - 1.500.000 kr
C - 1.500.001 - 3.000.000 kr
D - 3.000.001 kr+

Skráningargjald er 5000kr en meðlimir í Félagi hrossabænda borga 3000 kr fyrir skráninguna. 

Skráningar skulu sendast á netfangið hf@bondi.is þar sem fram þarf að koma:

Stjörnumerkt (*) atriði verða að berast:

*IS númer
*Nafn knapa
*Nafn, sími og tölvupóstur umsjónarmanns
*Verðflokkur
Lýsing á hestinum hámark 50 orð
Vefsvæði (.is .net .com facebook instagram)
Logo


Skráningu lýkur á miðnætti þann 27. Október.

Takið daginn frá því sýningar af þessu tagi njóta alltaf mikilla vinsælda.