Skagfirska mótaröðin

Skagfirska mótaröðin 2023

25. febrúar - Gæðingakeppni B-flokkur
Gæðingakeppni – B flokkur
1.flokkur, 2.flokkur og ungmennaflokkur B-flokkur
Unglingaflokkur og barnaflokkur

4.mars - Fjórgangur
V2 - 1.flokkur og ungmennaflokkur 
V5 - 2.flokkur, börn og unglingar 

1.apríl - Fimmgangur og slaktaumatölt
F2 og T4 - 1.flokkur og ungmenni
F2 og T6 - 2.flokkur
T7 - Unglingaflokkur 
T8- Barnaflokkur

7. apríl - Tölt og flugskeið
T3 - 1.flokkur, 2.flokkur, ungmenna -og unglingaflokkur
T7 - Barnaflokkur
Flugskeið 

22.apríl - Gæðingakeppni A-flokkur
Gæðingakeppni A-flokkur:  1.flokkur, 2.flokkur og ungmennaflokkur 
Unglingaflokkur og barnaflokkur

 

Reglur í liðakeppni í Skagfirsku mótaröðinni

  • Liðin þurfa að hafa nafn og sérkenni þannig að liðin þekkist.

  • Lágmark 3 í liði en annars er fjöldi í hverju liði ótakmarkaður. 

  • Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, bannað er að skipta um lið á miðju tímabili. Í upphafi tímabils verður hver og einn knapi að velja sér hvort hann ætli að keppa í 1. eða 2. flokk út mótaröðina.

Stigagjöf 

3 efstu knapar í forkeppni í hverri grein í hverju liði telja til stiga. Eingöngu forkeppni telur til stiga í liðakeppni.
Stigagjöf
1. sæti = 20 stig
2. sæti = 18 stig
3. sæti = 16 stig
4. sæti = 14 stig
5. sæti = 12 stig
6. sæti = 10 stig
7. sæti = 9 stig
8. sæti = 8 stig
9. sæti = 7 stig
10. sæti = 6 stig
11. sæti = 5 stig
10 sæti = 4 stig
11 sæti = 3 stig
12 sæti = 2 stig
13. sæti og niður úr fá 1 stig 

Hver knapi má koma með fleiri en einn hest í hverja grein, en aðeins einn hestur telur til stiga
Ef spurningar vakna má hafa samband við Ásdísi Ósk Elvardóttur. email: asdisosk98@gmail.com eða í síma: 897-2614